Fara í efni

Brynja leigufélag fær sjálfbærnismerki Landsbankans


Brynja leigufélag hefur hlotið sjálfbærnimerki Landsbankans fyrir útleigu á húsnæði á viðráðanlegu verði. Sjálfbærnimerkið er veitt þeim fyrirtækjum sem uppfylla skilyrði um sjálfbærni sem sett eru fram í sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og standast strangar kröfur um umhverfisvæn eða félagsleg verkefni.
„Við erum ákaflega stolt að taka við sjálfbærniviðurkenningu Landsbankans fyrir hönd Brynju og allra þeirra aðila sem standa að rekstri sjóðsins. Markmið sjóðsins frá upphafi hefur verið að leigja öryrkjum íbúðir á eins hóflegu gjaldi og kostur er. Viðurkenning þessi er okkur hvatning til að gera enn betur í framtíðinni og er fjármögnun Landsbankans okkur mikilvæg til að koma fleiri nýjum íbúðum á markað,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brynju leigufélags.

Á myndinni eru Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brynju leigufélags og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri hjá Landsbankanum.