Tekju- og eignaviðmið fyrir árið 2025
Tekju- og eignaviðmið eru uppfærð árlega með reglugerð nr. 183/2020. Frá og með 1. janúar 2025 eru þau eftirfarandi:
Einstaklingur: 8.686.000kr. á ári 723.833 kr. á mánuði
Hjón/sambúðarfólk: 12.161.000 kr. á ári 1.013.417 kr. á mánuði
Hvert barn undir 20 ára: 2.172.00 kr. á ári 181.000 kr. á mánuði
Eignaviðmið: 9.386.000 kr.
Aðilar sem eiga óuppgerðar skuldir við Brynju vegna fyrri leigusamninga koma almennt ekki til greina við úthlutun íbúða fyrr en þeir hafa gert upp skuldir sínar við félagið. Þegar umsækjandi hefur áður verið leigjandi hjá Brynju er horft til reynslu og greiðslusögu í því viðskiptasambandi.